strætó
Nú já ... ég er búinn að vera að reyna að komast í skólann mjög lengi í morgun, hvers vegna? jú vegna þessa að bölvaður andskotans strætóinn getur bara ekki verið á réttum tíma!! díses hvað ég er pirraður yfir þessum fjanda! en ég ákvað bara að taka mig til og senda eitt stykki kvörtunarbréf til umsjónarmanna þessa horbjóðs, voila:
"Ég er einmitt að spá í þessum tímum sem að strætisvagnar eiga að vera að fara eftir. Hvernig í andskotanum stendur á því að þessir vagnar geta aldrei nokkurntíman verið á áætlun? Núna er ég búinn að missa af 2 vögnum í röð vegna þess að þeir voru töluvert á undan áætlun!!! Er ekkert að marka þessar merkingar sem að settar eru í vagnaskýlin, eða er þetta bara svona viðmiðum, plús mínus 10 mínútur eða svo? Þetta kerfi ykkar er alger skömm og markleysa, og þið ættuð hreinlega að skammast ykkar, því manni sýnist hreinlega ekki betur en að þið séuð að reyna að stugga fólki frá því að nota almenningssamgöngur, þvílíkur er fáráðshátturinn við uppsetningu þessa kerfis.
Ég ákvað að hringja ekki inn vegna þess að þá hefði ég bara farið að öskra á einhverja greyans konuna sem að hefur sér ekkert til saka unnið, en ég vona að þetta bréf finni sér rétta leið til apakattanna sem að skipulögðu þessa hörmung.
Takk fyrir
Biggi Toker"
ég alveg hreint stórefa að þessar undirlægju skrifstofurottur eigi eftir að þora að senda þetta áfram á nokkurn sem að hefur eitthvað um málið að segja í þessu fáránlega illa rekna ríkisbjákni ... en maður getur lengi vonað ...
þangað til næst ...


